Einar K. Guðfinnsson endurkjörinn formaður Fiskifélagsins
Stærsta verkefnið samningur við ríkið
"STÓRA verkefnið verður að ganga frá samningi milli okkar og ríkisvaldsins," segir Einar K. Guðfinnsson, sem var endurkjörinn formaður Fiskifélags Íslands í gær. "Ef það tekst með bærilegum hætti, þá snúum við okkur að því að efla félagsstarfið og styrkja fiskifélagið enn."
Einar segir að það hafi staðið fiskifélaginu hingað til fyrir þrifum að samningar þess við Fiskistofu væru einungis til eins árs í senn: "Við höfum lagt ríka áherslu á að þessi samningur verði gerður til lengri tíma og um það standa núna samningaviðræður milli sjávarútvegsráðuneytis og Fiskifélagsins, með þátttöku Fiskistofu.
Vonast eftir niðurstöðu bráðlega
Hann segist vona að niðurstöðu sé að vænta í því máli fyrr en síðar: "Það er mikilvægt fyrir alla aðila vegna þess að samningurinn rennur út um áramótin. Að öllu óbreyttu væri sú upplýsingaöflun sem fiskifélagið annast í óvissu og það er auðvitað lífsnauðsynlegt fyrir fiskifélagið og þá sem það er að vinna fyrir að þessi mál skýrist sem fyrst."
Einar segir að samningarnir byggist á tiltekinni verktakagreiðslu sem Fiskifélag Íslands fái fyrir að annast upplýsingaöflun fyrir Fiskistofu og sé upp á 30 milljónir króna. "Ég tek skýrt fram að fiskifélagið er rekið á hreinum viðskiptagrundvelli hvað þetta áhræri. Allt félagsstarf fiskifélagsins er greitt af sjálfsaflafé þess, en ekki með ríkisstyrkjum."
Hann segist vera mjög sáttur við þingið. Á því hafi ekki verið mikil átök, en hins vegar miklar umræður: "Það er aldrei nein lognmolla í kringum störf Fiskiþings og það er ljóst að það sem hér hefur farið fram hefur vakið mikla athygli. Þá lögðu menn sig fram um það að þessi vettvangur sjávarútvegsins gæti komið fram einum rómi, - og það tókst."
Í stjórn Fiskifélags Íslands voru kjörnir Kristján Loftsson frá Reykjavík, Ágúst Elíasson frá Reykjavík, Helgi Laxdal frá Kópavogi, Pétur Bjarnason frá Akureyri, Örn Pálsson frá Reykjavík og Jóhann Þór Halldórsson frá Djúpavogi. Í varastjórn voru kjörin Guðjón A. Kristjánsson frá Ísafirði, Magnús Magnússon frá Akureyri, Halldór Guðbjörnsson frá Vestmannaeyjum, Hjörtur Gíslason frá Reykjavík, Hólmgeir Jónsson frá Reykjavík og Elínbjörg Magnúsdóttir frá Akranesi. Í milliþinganefnd voru kjörin Jónas Haraldsson frá Reykjavík, Elínbjörg Magnúsdóttir og Sigurður Viggósson frá Patreksfirði.
