Engin ein stjórnunarleið hentar öllum fiskveiðum
Úttekt sjávarútvegsritsins World Fishing - h3>
EKKERT er fjær sanni en að endanleg niðurstaða sé fengin í umræðuna um fiskveiðistjórnunina þó sumir áköfustu formælendur aflamarksleiðarinnar kunni að álíta svo, sagði Einar K. Guðfinnsson, stjórnarformaður Fiskifélagsins á fiskiþingi.
Hann vitnaði í nýlega úttekt sjávarútvegstímaritsins World Fishing, þar sem fram kemur í niðurstöðu að engin ein stjórnunarleið henti öllum fiskveiðum. Menn yrðu sennilega að beita mismunandi kostum og stjórnunaraðferðum. Engu að síður er því haldið fram í úttektinni að heppilegast sé að leggja til grundvallar flota- og sóknarstýringu. Slíkt kerfi hafi mikla kosti fram yfir uppboðskerfi veiðileyfa, sem gæti skilið sjávarútvegspláss og sjómenn eftir úti á köldum klakanum og væri félagslega, pólitískt og að öllu leyti óviðunandi í fiskveiðisamfélagi. Svipaða sögu sé að segja af hefðbundnum aðferðum okkar við fiskverndun. Veikleikarnir í reiknimódelunum, margbreytileiki lífríkisins og breyskleiki sjómanna við þær aðstæður sem okkur eru öllum kunnar, geri það að verkum að við höfum fúnar stoðir að styðja okkur við nema því aðeins að við söðlum um yfir í nýtt stjórnkerfi.
