Orð fá ekki lýst aðstæðunum
Þessir atburðir vekja nýjar spurningar
"ÞAÐ er fyrst og fremst sorg sem heltekur mann eftir þessi hörmulegu tíðindi frá Flateyri," sagði Einar K. Guðfinnsson, 1. þingmaður Vestfjarða. Einar sagðist hafa fengið fréttir af snjóflóðinu milli klukkan fimm og hálf sex á fimmtudagsmorgun og þeir Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður, sem búsettur er á Flateyri, fóru saman í stjórnstöð Almannavarna í Reykjavík. "Þar höfum við dvalist í allan dag og fylgst með framvindu mála og þeim öruggu og fumlausu vinnubrögðum sem hafa verið í kringum björgunaraðgerðirnar. Fyrir það eru auðvitað allir hlutaðeigandi ákaflega þakklátir.
Sérstakar aðstæður
Á þessari stundu vil ég fyrst og fremst færa aðstandendum þeirra látnu og öðrum sem eiga um sárt að binda vegna þessara hræðilegu atburða, mína dýpstu hluttekningu og hugur okkar allra er bundinn við aðstæðurnar á Flateyri. Þarna þekki ég marga og í hópi þeirra látnu eru vinir mínir og kunningjar. Og þessi atburður snertir mann ákaflega djúpt, ekki síst vegna þess að þetta er í annað skipti sem snjóflóð af þessu tagi fellur á mínum heimaslóðum. Orð fá ekki lýst þessum aðstæðum," sagði Einar.
Þegar Einar var spurður hvernig horfði til vetrarins í ljósi þessara atburða, sagði hann að veðurfarsaðstæður síðustu daga hefðu verið mjög sérstæðar. "Auðvitað vonar maður að veðurskilyrði af þessu tagi verði ekki aftur, en það veit enginn hvað veturinn hefur að geyma. Ég held þó að ég mæli fyrir munn allra Vestfirðinga þegar ég segi að síðasti vetur hafi reynt nægilega á okkur og við eigum þá von að komandi vetur fari mildari höndum um okkur," sagði Einar.
Sorgin og björgunin
Snjóflóðið sem féll á Flateyri fór langt niður fyrir áður skilgreind hættumörk. Því hafa vaknað spurningar um öryggi Vestfirðinga annarstaðar á svæðum sem skilgreind hafa verið utan hættumarka. Um þetta sagði Einar, að á þessari stundu hugsuðu menn eingöngu um þessa atburði, sorgina og björgunina.
"Það er ekki skynsamlegt að reyna að sjá mikið fram í framtíðina, en auðvitað er öllum ljóst að stjórnvöld og fólkið hvar sem er í landinu stendur með Flateyringum í þeirra miklu sorg, albúið að takast á við framtíðina með þeim. Hitt er það að þessir atburðir á Flateyri vekja með manni nýjar spurningar sem við erum einfaldlega ekki í stakk búnir að svara hér og nú en að því viðfangsefni hljótum við að einbeita okkur á næstunni," sagði Einar K. Guðfinnsson.
