Greinar/Ræður

Brugðist við í þröngri stöðu

30.3.1995

Goðsögnin um að menn í vestfirsku atvinnulífi hafi sofið á verðinum, segir Einar K. Guðfinnsson, er

ÞRÁTT fyrir að ytri aðstæður hafi verið vestfirsku atvinnulífi einstaklega óhagstæðar, er aðdáunarvert hversu menn hafa brugðist við og aðlagað sig breyttum aðstæðum, gagnstætt því sem haldið hefur verið fram í fjölmiðlum. Minnkandi þorskafli hefur komið sérlega hart niður á Vestfjörðum. Þar höfðu menn byggt atvinnulífið svo mjög upp í gegnum veiðar og vinnslu á þorski. Aðstæður buðu einfaldlega upp á það að eðlilegt var að menn sérhæfðu sig í þessari atvinnugrein. Þess vegna kom það harðar niður á Vestfjörðum en annars staðar þegar þorskaflinn dróst saman.

Fjölbreytni sjávarútvegsins

Rækjuvinnsla hefur vaxið mikið á Vestfjörðum síðustu misserin. Það er líka eðlilegt. Við Djúp var vagga rækjuiðnaðarins. Þar hefur rækjuvinnslan jafnan verið stór þáttur í atvinnulífinu. Ekki síst nú, þegar tekjur hafa dregist svo saman í öðrum þáttum sjávarútvegsins. Nú er óhætt að segja að þessi fyrirtæki séu í fararbroddi í þessari atvinnugrein í landinu.

Sama er raunar að segja um hina almennu fiskvinnslu. Þar er á hverjum degi verið að fitja upp á nýjungum til þess að bregast við minni tekjum. Fiskvinnslan í dag hefur gjörbreyst frá því sem áður hefur verið. Hún er sannarlega atvinnugrein í mikilli deiglu.

Minni sjávarútvegsfyrirtæki og útgerðir smábáta eru mikilvægur þáttur í atvinnusköpun á Vestfjörðum. Það að unnt var að verja krókaleyfið, ásókn hörðustu kvótasinnanna, skipti bókstaflega sköpum fyrir atvinnulífið víðs vegar á Vestfjörðum.

Dæmi úr iðnaði

Lítil verðbólga, hagstætt raungengi og breytt efnahagsumhverfi hefur skapað iðnaðinum jafnt og sjávarútvegi og samkeppnisgreinum nýja viðspyrnu. Þess má víða sjá merki. Tvö dæmi má nefna úr vestfirskum iðnaði. Póls tækni á Ísafirði hefur þegar haslað sér völl sem þekkt hátæknifyrirtæki. Þar vinna nú á milli 30 og 40 manns. Nýlega heimsótti ég þá, þar sem verið var að ganga frá tækjum til útflutnings til Hollands. Annað lítið iðnfyrirtæki er að hasla sér völl á Ísafirði, 3X stál, sem nú er að vinna sinn fyrsta markað vestur í Kanada, fyrir sérhæfðar vörur til sjávarútvegs.

Merki um grósku

Þá er ekki síður áhugavert að fylgjast með þeim margvíslega árangri sem atvinnuátak kvenna á Vestfjörðum er að skila. Ferðaþjónustan er sömuleiðis atvinnugrein, sem er í vexti. Hin ónumdu lönd á þessum vettvangi og vöxtur í greininni fram til þessa vekja vonir um að ferðaþjónusta verði veigamikill þáttur í vestfirskri atvinnusköpun.

Síðastliðið haust hafði ég frumkvæði að því að fá vestur til Ísafjarðar fulltrúa Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands, til skrafs og ráðagerða með forsvarsmönnum í atvinnulífsins á Ísafirði og nágrenni. Þessi fundur var mjög uppörvandi og sannfærði mig enn um nauðsyn þess að auka samstarf Háskóla Íslands og annarra mennta og vísindastofnana við atvinnulífið.

Allt er þetta merki um grósku. Enginn neitar því að við margs konar erfiðleika hefur verið og er að etja. En þessi dæmi sem hér hafa verið rakin sýna og sanna að sú goðsögn að menn í vestfirsku atvinnulífi hafi sofið á verðinum, er röng og á ekki við nokkur rök að styðjast. Höfundur er alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Vestfjörðum.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica