Efnisleg umfjöllun verði á landsfundi
"OKKUR þykir eðlilegt að efnisleg umfjöllun um tillögur okkar verði á landsfundi Sjálfstæðisflokksins," sagði Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður, aðspurður um væntanlega afgreiðslu Sjálfstæðisflokksins á tillögum hans og þriggja annarra frambjóðenda flokksins á Vestfjörðum um breytta fiskveiðistjórnun. Tillögurnar voru lagðar fram á fundi málefnanefndar Sjálfstæðisflokksins í sjávarútvegsmálum í síðustu viku. Einar sagði að ákveðið hefði verið að vísa tillögunum til stjórnar málefnanefndarinnar og miðstjórnar flokksins. "Við féllumst á þessa afgreiðslu, því við teljum ekki óeðlilegt að sjávarútvegsstefna flokksins sé tekin til efnislegrar afgreiðslu á landsfundi, eins og gert hefur verið. Ég geri ráð fyrir að þannig verði málið afgreitt." Einar sagði að þeir frambjóðendurnir fjórir hefðu talið óeðlilegt að 40 manna fundur afgreiddi tillögurnar efnislega, þegar 1.100 manna landsfundur kæmi saman í haust. "Í Þjóðvaka láta þau sig að vísu ekki muna um það að afgreiða stefnumál í sjávarútvegsmálum með 40 atkvæðum, en okkur fannst það ekki viðeigandi."
