Blogg

Staksteinar í vondum málum

28.1.2007 15:13

Nú er Staksteinahöfundur Morgunblaðsins í vondum málum. Verulega vondum málum. Í dálki Staksteina var skrifað þann 20 janúar sl. sigri hrósandi að þeir Tony Blair forsætisráðherra og David Attenborough sjónvarpsmaður ætluðu í herferð gegn hvalveiðum Íslendinga.

Ekki var nákvæmninni fyrir að fara í Staksteinum, fremur en svo oft áður. Hin meinta herferð Breta var hugsuð sem viðleitni til þess að fjölga ríkjum í Alþjóðahvalveiðiráðinu sem andvíg yrðu hvalveiðum. Staksteinar áttuðu sig ekki á því og hrósuðu ótímabærum sigri í baráttu sinni gegn rétti Íslendinga til sjálfbærrar auðlindanýtingar.

Nú gerðist það að á mbl.is þann 26. janúar sl. birtist viðtal við Alp Mehmet sendiherra Breta hér á landi. Þar gerði hann skilmerkilega grein fyrir því að baráttu Breta væri ekki beint gegn íslenskum vörum. Mehmet sagði, að ekki stæði til af hálfu breskra stjórnvalda að hrinda af stað herferð gegn íslenskum vörum; slíkt væri ekki háttur siðaðra þjóð, sagði hinn háttprúði sendiherra. Markmiðið væri að fjölga meðlimaríkjum Alþjóðahvalveiðiráðsins. En í Staksteinum var það ekki talið athugavert að slíkri herferð væri beint gegn Íslendingum. Þvert á móti leyndi sér ekki velþóknunin.

Þetta er ekkert nýtt, sagði Mehmet sendiherra, engin ný stefna í gangi. Síðan vakti hann athygli á að það sem Bretar væru að gera  hefði verið gert marg oft áður, meðal annars af öðrum þjóðum.

En hvernig ætli Staksteinar meðhöndli þetta mál núna, þegar ljóst er að þar á bæ hafa menn skrifað út frá fullkomnum misskilningi á meintri herferð Breta?  Líklegt er að þeir láti sem ekkert sé, berji höfði sínu við steininn og klifi áfram á málflutningi sínum, án tillits til þeirra upplýsinga sem hafa birst á vef Morgunblaðsins, en einhverrra hluta vegna ekki í blaðinu sjálfu.

Það er að minnsta kosti reynslan af blaðinu þegar það ræðir þessi mál.

Löngu eftir að ljóst var að hvalveiðar voru ekki áhrifavaldur um sölu lambakjöts í útlöndum,  héldu Staksteinar t.d áfram að klifa á  þeim ósannindnum. Þrátt fyrir að ferðaþjónustan hafi aldrei staðið með sama blóma og nú, láta Straksteinar eins og hún hafi goldið fyrir hvalveiðarnar. Þrátt fyrir að ferðabókanir hingað til lands hafi aukist og slegið öll met í kjölfar hvalveiðanna, tala Staksteinar með gagnstæðum hætti. Þrátt fyrir að hvalaskoðunarmenn segi síðasta ár hafa verið metár, bókanir rúlli inn og það stefni í enn meiri aukningu,  láta Staksteinamenn eins og ekkert slík eigi sér stað.

Það er þvess vegna við því að búast að þeir kæri sig kollótta um upplýsingarnar frá breska sendiherranum.  Staksteinar hafa  vondan málstað að verja.




Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica