Blogg

Ráðherrar mega sniðganga lögin, ef það hentar!

Slík umræða vekur ekki athygli fjölmiðla og álitsgjafa

19.1.2012 22:02

 

Það er til marks um hve þjóðfélagsumræðan er orðin firrt og fáránleg, að það vekur ekki athygli nokkurs fjölmiðils eða álitsgjafa þegar þingmaður á Alþingi Íslendinga lýsir þeirri skoðun sinni að allt í lagi sé að ráðherrar brjóti vísvitandi lög, bjóði honum svo við að horfa. Þessari skoðun lýsti Þór Saari í orðaskiptum okkar á Alþingi í gær.

Log-og-rettur Log-og-rettur

 

Aðdragandinn er sá að þingmaðurinn bar mig þeim sökum daginn áður á Alþingi að ég hefði verið að hilma yfir upplýsingum um óæskileg aukaefni í áburði. Þetta voru rangar sakir og það vissi þingmaðurinn. Í ráðherratíð minni árið 2008 hafði verið kveðinn upp úrskurður í sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytinu að ekki væri heimilt samkvæmt lögum að birta þessar upplýsingar opinberlega. Ráðherra sem stendur frammi fyrir slíkum úrskurði á þrjá möguleika.

1.       Að una óbreyttu ástandi og hafast ekki að.

2.       Að brjóta lögin og fara gegn úrskurðinum

3.       Að freista þess að breyta lögunum. Þannig brást ég viðog lét semja frumvarp sem heimilaði það að gera þessar upplýsingar opinberar.

Þingmaðurinn kallaði það yfirhilmingu að ég kaus að fara að lögum. Taldi hann réttlætanlegt að ég hefði það að engu að sem lög stóðu til:  og sagði að ég hefði sem ráðherra átt að „taka þennan hugsanlega lagalega slag sem hefði fylgt í kjölfarið. Þannig hefði góð stjórnsýsla átt að vera“ , eins og hann orðaði það.

Þessum málflutningi svaraði ég með þessum hætti: „Ráðherrann gerði hins vegar það sem honum bar að gera við þessar aðstæður ef hann á annað borð vildi að þessar upplýsingar yrðu gerðar opinberar, sem ég vildi. Það var gert með því að leggja fram frumvarp sem heimilaði að þessar upplýsingar yrðu gerðar opinberar. Þannig hljóta ráðherrar að bregðast við svona úrskurðum en það segir náttúrlega einhverja sögu um hið nýja Ísland sem hv. þm. Þór Saari boðar að hann hvetur til þess að ráðherrar virði að vettugi úrskurði af þeim toga sem ég nefndi. Hann hvetur ráðherra til þess að skauta létt yfir það hvort þeir eru að brjóta lög eður ei. Þetta eru heilmikil tíðindi sem hér er verið að segja.“

Athyglisverð eru að sjálfsögðu þessi ummæli þingmannsins og lýsir virðingarleysi hans fyrir lögunum sem Alþingi setur. Og dapurlegt er að vita til þess að svo sljó er orðin vitund fjölmiðla og álitsgjafa að þessi alvarlegu orð eru látin liggja í léttu rúmi. Menn hrökkva ekki við, þó þingmenn telji í lagi að ráðherrar hirði ekki um að farið sé að lögum. Ráðherrar geti bara umgengist landslögin eftir eigin vild. Það er ekki að undra þó ýmsum finnist – og það æ fleirum – að firring þjóðfélagsumræðunnar sé að ná áður óþekktum hæðum.


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica