Málið er í höndum Vinstri grænna
Nú berast böndin að Vinstri grænum. Fyrir Alþingi liggur nefnilega þingsályktunartillaga um að draga til baka umsóknina um ESB aðild. Málið er flutt af fulltrúum fjögurra flokka. Það er allra þeirra sem eiga fulltrúa á Alþingi, nema Samfylkingarinnar, auðvitað.
Nú hefur það hins vegar gerst að sessunautur minn á Alþingi þetta þingið, Mörður Árnason þingmaður Samfylkingarinnar, hefur hvatt til þess að málið verði tekið til afgreiðslu. Með því tekur hann undir hvatningu Þorsteins Pálssonar í Fréttablaðinu frá því í gær.
Það er þess vegna ekki eftir neinu að bíða. Við sem eldri erum en tvævetur, vitum að ríkisstjórnarmeirihlutinn ræður í raun dagskrá þingsins. Það blasir því við að núna hafa Vinstri grænir þetta mál í hendi sér. Af þeim bæ heyrast dag hvern miklar heitstrengingar um andstöðu við ESB aðild og hvatningar í þá veru í allar áttir.
Nú er tækifærið því að renna upp. Hvatningarorðin og heitstrengingarnar geta orðið að áhrínsorðum. Vinstri grænir þurfa ekki annað en að sjá til þess að málið fari á dagskrá. Því verður auðvitað ekki trúað að á því standi.
Vinstri grænir, koma svo!
