Blogg

Takk fyrir, ESB

8.7.2010

ESBEinhver góðviljaður maður ætti að hafa samband við forsvarsmenn ESB til þess að gera þeim grein fyrir einföldum staðreyndum sem þeim eru greinilega huldar. Tilefnin eru ítrekaðar ályktanir þessa mikla ríkjabandalags um hvalveiðar okkar Íslendinga og aðildarumsóknina sem Vinstri grænir og Samfylking beittu sér fyrir að yrði send til Brussel.

Jú þannig er mál með vexti eins og flestir vita hér á landi, að lítill minni hluti landsmanna vill sækja um aðild að ESB; kannski þetta 30% á góðum degi. Á hinn bóginn vilja hér um bil allir Íslendingar að við höldum áfram hvalveiðum. 80% er tala sem oftast kemur í ljós í skoðanakönnunum.

Þess vegna hljómar það ótrúlega afkáralega þegar utan frá ESB kemur hótun um að Íslendingar fái ekki aðild að ESB nema hvalveiðum verði hætti. Sjá menn ekki fáránleikann í þessum „hótunum“?

ESB segir Íslendingum – sem fæstir vilja ESB aðild – að aðildarumsókn verði ekki samþykkt nema að þeir láti af þeim hvalveiðum sem þeir nær allir vilja stunda !!

Með öðrum orðum. ESB segir: Þið getið fengið aðild að Evrópusambandinu  - gegn vilja ykkar,   -  ef þið hættið að stunda hvalveiðar,  - gegn vilja ykkar.

Afkáraleikinn getur stundum orðið ótrúlegur í stjórnmálum. En þetta hlýtur að teljast með því vitlausara, sem hefur þar rekið á fjörurnar.

Fyrir okkur sem berjumst gegn aðild Íslands að ESB er þá bara eitt að segja í lokin. Takk fyrir ESB. Þetta er ómetanlegt í baráttunni gegn ESB aðild.

 



 

 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.