Blogg

Beðið eftir dómstólunum

6.7.2010 10:34

Dómur fellurNú eru þeir farnir að þræta ráðherrarnir og segjast víst hafa verið vel búnir undir dóm Hæstaréttar vegna gengistryggðu bílalánanna. Það er rétt að áður en dómurinn féll, þóttust þeir hafa ráð undir rifi hverju. Vita hvað til bragðs skyldi taka hvernig sem dómsniðurstaðan færi, eins og ég skrifaði hér á dögunum.

En síðan hefur málið allt einkennst af ráðleysi. Enda ekki við öðru að búast. Ráðalaus ríkisstjórn getur aldrei einkennst af nokkru öðru en ráðleysi og fumi.

Dómsniðurstaðan er fengin. Það er hins vegar ljóst að menn greinir á um ýmislegt, sem tengt er gengisbundnum lánum. Það má sjá af spurningum eins og þessum, sem hafa vaknað í kjölfarið:

Á þetta við önnur gengisbundin lán, til dæmis húsnæðislán? Voru lánsskilmálarnir öðruvísi í þeim tilvikum og ýmsum öðrum? Var í rauninni verið að lána fólki erlent fé, en ekki gengisbinda innlent lán? Hvaða vexti á að styðjast við? Og síðast en ekki síst, það sem ég vakti einnig máls á hér á þessari síðu. Hvað með þá sem í vandræðum eru, en hafa ekki tekið erlend lánd heldur innlend? Blasir ekki við að þeir heimta sitt, krefjast almennra aðgerða sér til handa líkt og verður fyrirsjáanleg afleiðing bílalánadómsins gagnvart þeim sem tóku gengisbundnu lánin?

Ríkisstjórnin kveðst ekki ætla að svara þessari spurningu. Við sjálfstæðismenn sögðum á okkar Landsfundi, að vildum sátt um gengislán og og verðtryggingu. Setja þyrfti í forgang þau dómsmál sem upp kynnu að koma í kjölfar hæstaréttardóma um gengisbundin lán og láta dómstóla ráða niðurstöðunni.

Nú er sem sagt runninn upp biðtími og tími margvíslegra málaferla. Það verða dómstólarnir sem munu svara spurningunum sem kallað er eftir svörum við.




Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica