Blogg

Frá ríkisstjórninni berast bara hroturnar

21.5.2010 11:20

Steinsofandi stjórnVerkföll eru alltaf alvarleg aðgerð og nánast neyðarúrræði. Oftast er þeim beitt í samskiptum launþega og vinnuveitenda. Nú er það ekki á döfinni. Hins vegar getur stefnt í það að verkalýðshreyfingin sjái sig tilknúna að fara í verkfall. Gegn ríkisstjórninni. - En hvers vegna gegn ríkisstjórninni?

Jú. Það er ríkisstjórnin sem er augljósi andstæðingurinn. Hún er fótakeflið sem þvælist fyrir atvinnuuppbyggingunni. Hún er Þrándur í Götu góðra samskipta á vinnumarkaði. Hún er aðal vandamálið sem við er að eiga. - Hún er vandamálið sjálft, holdi klætt.

Lífeyrissjóðirnir eru búnir að leggja til hliðar 100 þúsund milljónir, eitt hundrað milljarða, til þess að standa fyrir atvinnusköpun. Þar þarf ríkið að koma að málinu án þess þó að leggja fram fimmeyring.

Um er að ræða byggingarframkvæmdir, vegagerð og aðrar verklegar framkvæmdir.  Þær framkvæmdir myndu koma hjólum í atvinnulífinu af stað í bókstaflegri merkingu. Þær myndu slá á fjölda þeirra 17 þúsund manna sem nú eru atvinnulausir, borga ríkinu því ekki skatta, en njóta eðlilega atvinnuleysisbóta.

Þetta hruggar ekki við hinni steinsofandi ríkisstjórn. Frá henni koma ekkert nema hroturnar. Ríkisstjórnin er ekki einu sinni í svefnrofunum. Það gerist ekkert hversu harkalega sem við henni er stuggað. Hún steinsefur bara og sker hrúta.

Og á meðan ríkisstjórnin sefur, blæðir atvinnulífinu út, fólkinu fjölgar á atvinnuleysisskránum, ríkissjóður fær ekki skatttekjur en útgjöld hans aukast.  Þetta er ótrúleg stjórnviska.

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica