Fylgir hann eigin sannfæringu eða Samfylkingarinnar?
Það eru hafnar nýjar stjórnarmyndunarviðræður og nú er komið að dagskrárliðnum skipting ráðuneyta. Á þetta benti ég í gær í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi þar sem Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður VG var til andsvara.
Oft hef ég séð Steingrím minn beittari og ákveðnari. Hann hafði greinilega litla sannfæringu fyrir þeim breytingum sem verið er að boða í Stjórnarráðinu. - Eða var hann kannski að gæta þess að ergja ekki flokksmennina sína sem eru algjörlega á móti tiltækinu?
Því eins og ég rifjaði upp þá liggur fyrir mjög gagnrýnin flokkssamþykkt frá VG um þessi mál, svo vægilega tekið til orða. Sjálft Flokksráðið talaði . Að þeirri samþykkt stóð Steingrímur formaður einnig, nema hvað. Samfylkingin er á hinn bóginn óð og uppvæg að gera þessar breytingar. Og nú stendur formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs frammi fyrir tveimur kostum.
Á hann að fylgja flokkssamþykktum flokksins sem hann er formaður fyrir og segja nei við uppstokkunarhugmyndunum í Stjórnarráðinu? Eða á hann að fylgja flokkslínu Samfylkingarinnar og ganga til verka við að breytingarnar í Stjórnarráðinu og breyta þannig gegn flokkssamþykktinni sem hann sjálfur ljáði atkvæði sitt? Hann á sem sagt allt í senn, valið, völina og kvölina.
En svo eru þessar breytingar alveg dæmalaust vitlausar. Hverjum dettur það í hug að henda út úr ráðuneyti sjávarútvegsmála, meginverkefni á sviði þess málaflokks? Og hverjum dettur í hug að veikja stjórnskipunarstöðu landbúnaðarins á þessum örlagatímum? Nú svarið er auðvitað. Engum nema ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Hugmyndaflugi þeirra er engin takmörk sett þegar kemur að vitleysunni.
