Blogg

Hvernig endar sá útreiðartúr?

2.3.2010 8:49

NykurHaraldur Benediktsson formaður Bændasamtakanna flutti mjög góða og kröftuga ræðu við upphaf Búnaðarþings, þann 28. febrúar sl.. Hann greindi meðal annars frá afar athyglisverðri skoðanakönnun sem leiðir í ljós að einungis um fjórðungur landsmanna treystir ríkisstjórninni til þess að gæta hagsmuna okkar í samningum við ESB. Um þetta fjallaði ég á bloggi í gær, sem hér má lesa.

Þetta er eitt mesta kjaftshögg sem nokkur ríkisstjórn getur fengið. Ríkisstjórn sem fær þann dóm þjóðarinnar að henni sé ekki treystandi fyrir þjóðarhagsmunum í samskiptum við aðrar þjóðir, á ekki lengur trúnað þjóðarinnar. Og þegar hann er farinn er lífsneistinn slokknaður.

Í ræðu sinni greip formaður Bændasamtakanna til myndlíkingar, sem vakti mikla athygli fundarmenna. Þar sagði:

"Sáttmáli stjórnarflokkanna um aðildarumsókn líkist því helst að ákveðið hafi verið að tvímenna í útreiðartúr til ESB-girðingarinnar. Annar snýr aftur og hinn fram í hnakknum og síðan hotta þeir á klárinn í sitt hvora áttina. Meðan aðildarsinninn horfir yfir taglið sér hann fyrirheitnu girðinguna fjarlægjast en streðar þó enn. Hinn þorir ekki að taka almennilega í tauminn og stöðva. Ekki get ég hugsað þá hugsun til enda, eins og sagt er nú á tímum, hvernig útreiðartúrinn endar. "




Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica