Blogg

Hljóðlát breyting á utanríkisstefnu okkar

24.2.2010 8:54

ESB löndÁn þess að nokkur tæki eftir, að heitið getur, er að verða hljóðlát stefnubreyting á tilteknum þáttum utanríkisstefnu okkar vegna aðildarumsóknarinnar að ESB . Ábyrgðarmenn þessarar stefnubreytingar eru þingflokkar Vinstri grænna og Samfylkingar, sem læstu saman höndum við stjórnarmyndun til þess að tryggja aðildarumsókn okkar að ESB.

Ég vakti athygli á þessu í umræðum á Alþingi í gær. En hvað er átt við?

Tvennt má nefna.

Færeyingar hafa lengi haft áhuga á að skoða mögulega aðild að EFTA og gerast þannig aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu, EES. Þar væru þeir í góðum félagsskap vina sinna eins og okkar. Við erum í raun á sjálfstæðu efnahagssvæði með Færeyingum, á grundvelli svokallaðs Hoyvíkur sáttmála. Hann er ekki bara viðskiptasamningur heldur sáttmáli um efnahagssvæði Íslands og Færeyja. Fyrir Færeyinga gæti því verið rökrétt að skoða aðild að EFTA, sé það þeirra ákvörðun.

En ekki lengur. Nú er komin upp ný staða. Vinstri grænir og Samfylking fengu sínu framgengt. Það standa yfir samningaviðræður við ESB, undir miklum gleðilátum úr íslensku ríkisstjórninni, en óvíða annars staðar. Forsendur fyrir áhuga Færeyinga á mögulegu nánara samstarfi hafa breyst fyrir vikið. Það gefur augaleið. Takist VG og Samfylkingu ætlunarverkið að teyma okkur inn í ESB, þá förum við út úr EFTA. Svo einfalt er það.

Í annan stað liggur fyrir að hinar mikilvægu viðræður við Kínverja um tvíhliða viðskiptasamning eru komnar á ís. Ástæðan er líka aðildarumsóknin að ESB. Kínverjar vildu feta sig inn á slóð tvíhliða viðskiptasamnings við okkur; nánast í tilraunaskyni. Við erum lítið opið þjóðfélag, með náin tengsl við Evrópu. Slíkur samningur við okkur væri því ágæt byrjun að mati Kínverja.

En ekki lengur. Rétt eins og hjá vinum vorum og frændum er komin upp ný staða. Vinstri grænir og Samfylking hafa séð fyrir því með aðildarumsókninni að ESB. Það er þeirra forgangsmál.

Þannig hefur ríkisstjórnin í raun gert hljóðláta breytingu á tilteknum þáttum utanríkisstefnunnar.  Allt í þágu draumsins um ESB aðild sem Vinstri grænir bera ekki síður ábyrgð á en Samfylkingin.




Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica