Blogg

Aldrei brugðist vondum málstað

12.2.2010

Þórólfur MatthíassonÞórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu  skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í  síðarnefnda blaðinu.

Í sjálfu sér þarf ekki að útskýra þessi mál í íslenskum fjölmiðlum. Við þekkjum Þórólf og skrifin hans og vitum auðvitað að þau dæma sig sjálf. Hann hefur verið tíður álitsgjafi á Speglinum  Ríkisútvarpsins og jafnan skipað sér í sveit þeirra sem varið hafa öll gönuhlaup og samningsmistök ríkisstjórnarinnar í Icesavemálinu. Það er því skiljanlegt að honum sárni ummæli Evu Joly. Því eins og máltækið segir: Sannleikanum verður hver sárreiðastur.

En hvað sagði Eva Joly sem særði hinn hörundssára prófessor svo? Það var meðal annars þetta:

„Prófessor Þórólfur Matthíasson hefur um langt skeið stutt kröfur Breta og Hollendinga. Í grein hans, sem birtist í Aftenposten 2. febrúar, er ýmsu sleppt og rangt farið með staðreyndir.“

Og síðar sagði hún ennfremur:

„Þórólfur gefur til kynna með lítt fræðilegum hætti að þeim, sem telja að Icesave-samningarnir séu dæmi um hráa valdníðslu og endurspegli fallið fjármálakerfi, megi líkja við Bernie Madoff, sem var dæmdur í 150 ára fangelsi. Óljóst er í greininni hvernig hann kemst að þeirri niðurstöðu.“

Þetta er allt saman rétt hjá Evu Joly.  Íslenska þjóðin er á góðri leið með að hafna  Icesave óberminu. Meira að segja ríkisstjórnin sér sitt óvænna og vill nú leggja af stað til nýrra viðræðna um málið.

 Við þær aðstæður er ekki að undra að maður sem hefur stutt allar útgáfur af Icesaveklúðri  ríkisstjórnarinnar viti ekki sitt rjúkandi ráð; ekki frekar en Indriði H Þorláksson sem einnig hefur verið manna ólatastur við að verja vondan málstað. Líkt er á komið með þeim kumpánum og skrif beggja verða að skoðast í því ljósi. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa aldrei brugðist vondum málstað í Icesavemálinu.

 



 

 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.