Blogg

Dálaglegt kompaní

11.2.2010

Indiriði H. ÞorlákssonÓhamingjunni verður flest að vopni þessa dagana. Núna þegar mest ríður á að standa saman, þá er kastað reykbombum úr fjármálaráðuneytinu. Sprengjukastarinn er sjálfur aðstoðarmaður fjármálaráðherrans og einn helsti handlangari hans við gerð Icesavesamningins , Indriði H. Þorláksson. Grein hans í Fréttablaðinu er augljós tilraun til þess að afvegaleiða umræðuna um hinn hraklega samning um Icesave, sem þjóðin býr sig nú undir að hafna í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þetta er enn ein tilraunin til þess að þvo hendur núverandi ríkisstjórnar af Icesavesamningnum. Fyrir löngu er búið að sýna fram á þá staðreynd að einungis ein ríkisstjórn hefur gert Icesavesamninga. Það er ríkisstjórn Jóhönnu  Sigurðardóttur, ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Og ríkisstjórnin sú hefur ekki gert einn samning heldur tvo vegna þess að Alþingi gerði hana afturreka með þann fyrri.

Hinn síðari var útvötnun á samþykkt Alþingis frá því í fyrrasumar, rétt eins og Jón Daníelsson háskólakennari við London School of Economics bendir á í góðri grein í hinu þekkta viðskiptadagblaði Financial Times í gær. Sá samningur var afleitur, var barinn í gegn með litlum þingmeirihluta með atkvæðum þingmanna Samfylkingar ( allir sammála þar) og þingmönnum úr VG auk Þráins Bertelssonar. Þetta eru þingmennirnir sem eru ábyrgðarmenn þess Icesavesamnings  sem svo mikil andstaða er við hér á landi.

Athyglisvert er síðan að grein Indriða er beint gegn sjónarmiðum aðstoðarmanns Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur fyrrv. utanríkisráðherra. Segir það sína sögu um þá hörku sem pólitískur aðstoðarmaður formanns VG beitir í því að réttlæta hinn hraklega samning sem ríkisstjórnarflokkarnir knúðu fram.

Með grein sinni slæst  Indriði H Þorláksson  í hópinn með Þórólfi Matthíassyni prófessor sem  skrifaði dæmalausa grein í Aftenposten  þann 2. febrúar, sem bersýnilega var til þess fallin að sverta málstað Íslands og veikja hann.. Þetta er orðið dálaglegt kompaní. Makalaust er það að talsmenn Icesavesamningsins skuli helst láta sér detta í hug að setja málflutning sinn fram með þeim hætti að það veiki stöðu Íslands

 

 



 

 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.