Blogg

Ósanngjörnum niðurskurði mótmælt

10.2.2010 13:13

Þrýstingurinn mældurBoðað hefur verið til tveggja mótmælafunda vegna niðurskurðar á Heilbrigðisstofnununum á Sauðárkróki og á Blönduósi nú á föstudaginn kemur. Fyrir fundunum standa  annars vegar Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki og hins vegar fólk sem staðið hefur fyrir undirskriftasöfnun  til þess að mótmæla  miklum niðurskurði Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi.

En um hvað snýst málið? Og eru þetta réttmæt mótmæli?

Jú, þannig er mál með vexti að ríkisstjórnin ákvað við fjárlagagerð að marka málaflokkum sínum tiltekna fjárlagaramma. Gert var ráð fyrir að skera niður minna á velferðar og heilbrigðissviði, en öllu meira í öðrum málaflokkum. Í sjálfu sér ekki gagnrýniverð nálgun og svipar til þess sem oft hefur verið gert í aðhaldsaðgerðum ríkisins.

En svo fylgdi sögunni að ekki ætti að skera niður flatt, sem einnig er skynsamlegt. En sú ákvörðun leggur mikla ábyrgð á herðar fagráðuneytum. Niðurskurður sem ekki er flatur verður að vera rökstuddur og á það hefur einmitt skort.

Niðurskurðurinn sem bitnar svo harkalega á heilbrigðisstofnunum á Blönduósi og í Skagafirði er hlutfallslega miklu meiri en almenna reglan gerir ráð fyrir í heilbrigðismálunum. Niðurskurður í málaflokkum heilbrigðisráðuneytisins  er að jafnaði  5%, en amk. 10 prósent hjá þessum stofnunum.

Hvaða skilaboð eru það? Þau eru einföld. Það er mat heilbrigðisráðuneytisins að á þessum stofnunum sé verið að halda úti þjónustu sem ekki sé ástæða til.  Að fjárframlög til þessara stofnana séu hlutfallslega of mikil. Þess vegna sé ástæða til að lækka þau. Flóknara er það ekki.

Þessu mati heilbrigðisráðuneytisins erum við að mótmæla sem ætlum að mæta til þessara funda. Við erum ósátt við þetta álit ráðuneytisins og ráðherrans.

Það gera sér allir grein fyrir að draga þurfi saman seglin. En menn kalla eftir sanngirni og réttlæti. Það hafa ekki verið sett fram nein sannfærandi rök úr heilbrigðisráðuneytinu um að standa þannig að málum að þessar tvær stofnanir taki á sig svona mikinn niðurskurð. Allt tal um að ekki eigi að skera niður flatt er í þessu tilviki skálkaskjól til þess að skera niður með óeðlilegum hætti á þessum mikilvægum heilbrigðisstofnunum, sem þar að auki eru gríðarlega mikilvægar stoðir í byggðunum, ekki síst í atvinnulegu tilliti.

Það er þessu sem við mótmælum og það er þessu sem við getum ekki unað. Alls ekki.

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica