Kunnuglegt stef?
Frétt í Morgunblaðinu í gær mánudag staðfesti að hviksögurnar sem gengu um að tilteknir stjórnarliðar færu þess á leit við Framsóknarflokkinn að hann gengi til liðs við ríkisstjórnina voru á rökum reistar. Það staðfesti formaður flokksins í samtali við blaðið.
Þar með er það komið upp á yfirborðið að ekki er einasta að innviðir ríkisstjórnarinnar séu orðnir feysknir eftir margvísleg innbyrðis átök stjórnarflokkanna. Heldur eru líka óheilindi í samstarfinu orðin lýðum ljós.
Lengi hefur öllum verið ljóst að niðurlæging Vinstri grænna í stjórnarsamstarfinu er farin að reyna mikið á þolrif flokksmanna. Frægt bréf nokkurra forystumanna flokksins til formannsins, skrif öflugra manna og ályktanir flokksfélaga og jafnvel helstu stofnana hafa sýnt það sem einstakir flokksmenn hafa haft lengi á orði. Mikil þreyta og pirringur er í röðum VG liða vegna ofríkis hins stjórnarflokksins.
Nefnum bara eitt dæmi. Dettur einhverjum í hug að það gangi þrautalaust fyrir VG að kyngja í einum munnbita sínu helsta kosningaloforði, ESB málinu? Flokkurinn kvaðst vera einarðasti andstæðingur ESB aðildar, en ber nú jafna ábyrgð á því máli og helsti aðdáandi ESB, Samfylkingin. Þertta nístir merg og bein margra flokksmanna.
Með skipulögðum og reglubundnum hætti minnir Samfylkingin á sig og hristir samstarfsflokkinn til, svo sem eins og til að minna á hver ræður á stjórnarheimilinu. Dæmin um "Rýtingsstungurnar þrjár" sanna það. Sárabætur VG eru að fá leyfi til að standa á bremsunni gagnvart öllum orkufrekum stórframkvæmdum; hvort sem það eru álver, gagnaver eða annar iðnaður. Það hentar Samfylkingunni líka ágætlega að láta VG sitja uppi með þann Svarta-Pétur að vera kallaðir ástæða þess að illa gengur í uppbyggingu atvinnulífsins.
Verkaskiptingin er þá svona. VG fær þann heiður að vera sá aðilinn sem lappirnar dregur í atvinnuuppbyggingu. En Samfylkingin framkvæmir hugsjónir sínar í stærstu málum á borð við ESB.
Hitt er svo hins vegar kunnuglegt að í samstarfi með Samfylkingu sé farið að ræða við aðra flokka á bak við samstarfsaðilann. Eru þar kannski vanir menn á ferð? Ætli persónur og leikendur séu hinir sömu og haustið 2008?
