Blogg

Alþingi samþykkir að efla Náttúrustofurnar

3.2.2010 8:59

Snæugla - mynd frá Náttúrustofu VestfjarðaÞað var ánægjulegt að það tókst að skapa þverpólitíska samstöðu á Alþingi í gær um aukin verkefni fyrir Náttúrustofurnar sem starfa einkanlega á landsbyggðinni. Hér er ég að vísa til þess að Alþingi samþykkti með öllum greiddum atkvæðum að breyta texta Náttúruverndaráætlunar með eftirfarandi hætti:

„Náttúrustofur komi að undirbúningi og framkvæmd náttúruverndaráætlana í samræmi við margháttað hlutverk þeirra samkvæmt lögum.“ – Þetta var breytingartillaga sem ég flutti við tillöguna og greint var frá meðal annars hér.

Þarna má segja að í fyrsta sinn sé gert ráð fyrir formlegri aðkomu Náttúrustofanna í landinu að gerð Náttúruverndaráætlunarinnar og framkvæmd hennar . Þetta er ótrúlegt en satt. Hingað til hafði ekki verið gert ráð fyrir því í ályktunartextanum sjálfum að Náttúrustofurnar hefðu nokkurt hlutverk, hvorki við gerð ní við framkvæmd Náttúruverndaráætlunarinnar. Í þeirri ályktunartillögu sem lögð var fyrir Alþingi var hvergi í einum stafkrók minnst á nokkra aðkomu þessara mikilvægu vísinda og rannsóknarstofnana á landsbyggðinni, þrátt fyrir að verkefni Náttúruverndaráætlana féllu algjörlega að margvíslegum verkefnum sem Náttúrustofunum er ætlað.

Þessi mál hef ég all nokkrum sinnum tekið upp, en farið að mestu erindisleysu. Þar til nú. Það er ástæða til þess að þakka þann góða skilning sem  skapaðist.

Um þessi mál fjallaði ég  frekar í grein sem ég birti í Morgunblaðinu, þann 15. desember síðast liðinn og má lesa hér, en einnig í héraðsfréttablöðum.




Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica