VG fær á lúðurinn frá Jóhönnu
VG fékk á lúðurinn frá Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í dag. Í dagskrárliðnum Óundirbúnar fyrirspurnir lagði stalla hennar, Þórunn Sveinbjörnsdóttir þingmaður prýðilega undirbúna fyrirspurn fyrir forsætisráðherra um sameiningu svo kallaðra atvinnuvegaráðuneyta, Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis og iðnaðarráðuneytis. Þessi sameining hefur verið boðuð í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, Vinstri hreyfingunni Grænu framboði til mikils ama og leiðinda.
Spurningin var eitthvað á þessa leið. Ætlið þið nú ekki örugglega að standa við fyrirheitin úr stjórnarsáttmálanum.
Þetta er bæði lipur og lævís spurning, þótt sakleysisleg kunni hún að hljóma svona fyrsta kastið.
Eins og við munum þá ályktaði VG á gegn þessari sameiningu á flokksráðsfundi sínum á Akureyri 16. janúar sl. Í flokksráðinu eiga sæti helstu forystumenn flokksins og harðasti kjarni hans. 130 manns sátu fundinn á Akureyri. Þar var ályktað svona:
„Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Akureyri 15.-16. janúar 2010, skorar á stjórn og þingflokk VG að áform um endurskipulagningu stjórnarráðsins verði enduskoðuð í ljósi breyttra aðstæðna og yfirfarin áður en frekari skref verða tekin.
Á næstu árum munu grunnatvinnuvegir þjóðarinnar svo sem landbúnaður og sjávarútvegur skipta verulegu máli við endurmótun íslensks atvinnulífs, eftir sviðna jörð frjálshyggjunnar og græðgisvæðingu undanfarinna ára.
Varhugavert er að draga úr vægi ofangreindra atvinnugreina innan stjórnsýslunnar á sama tíma og þjóðin þarf öðru fremur að treysta á þessa málaflokka í þeim hremmingum sem nú ganga yfir.“
Þetta er sem sagt kurteisisleg krafa um að hætta við allt sameiningarklabbið. Rétt eins og Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vill. Harðasti kjarni VG og ráðherrann sem í hlut á vilja með öðrum orðum ekki þessa sameiningu.
En þá setur Samfylkingin upp sjónarspil. Það líður ekki nema hálfur mánuður. Á fyrsta þingdegi eftir að VG hafði ályktað, er forsætisráðherranum búinn vettvangur á Alþingi til þess að senda skýr skilaboð til VG og þau eru svona: Við hlustum ekki á ykkur. Ekki frekar en þegar þið segið forystufólki ykkar að berjast gegn ESB aðild sem flokkurinn stóð þó að á Alþingi.
Og forsætisráðherrann skóf ekkert utan af því þegar hún sendi félögunum í VG tóninn. Hún minnti á ákvæðið í stjórnarsáttmálanum og bætti svo við, svona rétt aðeins til að snúa hnífnum í sárinu: „Og það sem er í stjórnarsáttmálanum hefur auðvitað ríkisstjórnin skyldur til þess að framkvæma. Báðir flokkarnir“
Þetta heitir að fá á lúðurinn, svo um munar. En sönnum til. VG lætur þetta yfir sig ganga. Lítilþægni þeirra er takmarkalítil þegar til stykkisins kemur. Þeir láta sér nægja að derra sig svolítið norður á Akureyri, en þagna svo. Það veit forsætisráðherrann og það veit Samfylkingin.
